|
|
09.05.2007 14:17:54 / skens_madur
Jibbí... Benni minn
það er víst eins gott að koma með eitt gott blogg fyrir þig
svo þú hafir nú eitthvað að lesa
Langar bara
til að gleðja þig með því að ég náði Eðlis-Efnafræðinni minni
með fkn. 5 úúúújeeeee...
Ef þú
nefnir ekki hversu stoltur þú ert af mér þá bara já, veit ég
ekki hvað
gerist...
Þetta blogg virðist vera skrifað í samræðustíl eins
og ég var að læra um í íslenskunni
En það er
af því að ég held að þú sért eina manneskjan sem skoðar ennþá
þessa blessuðu síðu mína svo ég held bara áfram að tala við
þig í eintölu En já, ég
lofaði sveittu bloggi um súkkulaði rúsínur, Cult og snakk eða
var það öfugt? Allavega þá er ég búin að vera að vinna
síðustu tvö kvöld og jesús fólkið sem verslar þarna er ekkert
smá spes annað hvort hringir það brjálað af því við eigum
ekki sviðahausa, hleypur inn og spyr um epla Cíder og drífur
sig út aftur eða það hleypur inn og kallar “hey, hvar eruð
þið með Vaselínið” hmmm... wonder what he is doing...
allavega... Þá er ég
held ég bara að standa mig þokkalega vel í þessum blessuðu
prófum komin með 6 í þýskunni, 8 í íþróttum, Hraðlestrinum
er lokið og ég er með 5 í náttúrufræðinni eins og kom fram
hér að framan. Annars er
þetta nú bara hálfgert neytt blogg, langar samt að deila því
með ykkur að ég er búi´n að vera að áreita skátana á
http://www.hugi.is/skatar/articles.php?page=view&contentId=4866004#item4866782
ég semsagt er skens...
Þannig ef þið heyrið ekki frá mér næstu vikurnar hef ég annað
hvort fundið mér skátadreng eða þá að þeir hafa kært mig fyrir
áreiti... Hmmm... hvort
finnst ykkur líklegra... sem minnir mig á Benni drífðu þig í að
halda þetta blessaða námskeið fyrir mig... I need
it... Verð samt að fá
að lemja þig fyrir að byrja aftur að reykja það bara gengur ekki
drengur... þú hefur enga sjálfstjórn, (segir sú sem er að perrast í
skátunum á huga) anyways...
langaði til að tilkynna að 10-11 er að fá í sölu hálfslíters Cult
það ætti að koma upp á næstu dögum á eftir að setja það inn í
kerfið Já, ég á mér mikið líf
En
já, það væri kannski málið að fara að læra aðeins... :/ er búin að
hanga hérna í sirka 3tíma og ekki gera rassgat í bala, er að pæla í
að sleppa því að glósa þetta og lesa frekar bara og hugsa...
haha... er ekki alveg að nenna þessu... kannski bara punkta
niður aðalatriðin, en hey, af hverju ættiru að hafa áhuga á mínum
lærdómi... Anyways... var
þetta nógu gott fyrir þig hrukki??
Býst við
fallegu, góðu og löngu kommenti á þetta frá þér...
btw.
ég breytti síðunni í grænann til að tóna betur við kindurnar
btw2. just
try to name one reason why you shouldn't love me...
»
16.03.2007 22:29:04 / skens_madur
MIG!!!!
LANGAR!!!!
SVO!!!!
AÐ!!!!
FARA!!!!
Vill einhver koma með
mér??
Helgina
7-9apríl.
Hátíðin er laugardaginn
8apríl.
Frá 16:00 til eitthvað um
nóttina...
Reyndar eitt að þessi
helgi er páska helgin en só?
Einhver sem vill koma
með?
Ég veit það stendur
15.apríl á myndinni en þetta er líka mynd frá því í fyrra

LISTAMENN ERU:
BenniHemmHemm
Hann þekkja allir.. með stærstu
hljómsveit í Evrópu, þurftum að redda sér sponsi undir bandið hans.
Við hefðum reddað 20 sponsum fyrir hemma any time, bara að
meistarinn komi vestur.
Mr.Silla
Mr. Silla slær alltaf í gegn þegar hún
kemur fram, ég veit ekki hvað ég hef heyrt oft í ár ´´ertu búinn að
heyra í Sillu´´ alla á Ísafirði hlakka til að heyra í hinni
einu sönnu sól-söngkonu Íslands ....
Borkó
Hefur samið fyrir íslenska Dansflokkin
(sem kemur út mjög fljótlega) og gefið út dúndurplötuna preset
limbo... og er langt kominn með nýja plötu sem án efa verður
instant klassík.
Drengjakór
MÍ
Þeir eru að taka svona íslensk
ættjarðarlög og gera að sínum.. með bandi og
kórstjóra....
Hairdoctor
Hann er skemmtilegur
hárgreiðslusnillingur sem er alltaf í stuði.. hann gerði garðinn
frægan fyrst með Fídel, en er núna aðal í
Hairdoctor.
Jet Black
Joe
Vestfirðingar ætla að sættast við Jet
Black Joe og Jet Black Joe ætla að sættast við þá, eitt flottasta
rokkband á landinu fyrr og síðar.
Þröstur
Jóhannesson
Gítarleikari, banjóleikari, söngvari,
netagerðarmaður. Hann getur allt hann Þröstur. Er að kasta í eitt
stykki plötu sem verður hans fyrsta sólóplata.
Kristinn
Níelsson
Skólastjóri Tónlistarskóla Bolungarvíkur,
gítarsnillingur, fiðlusnillingur og eðalmenni. Rétt eins og Þröstur
er hann að ganga frá sinni fyrstu plötu og mun væntanlega leyfa
okkur að heyra af henni.
Lack of
Talen
Menntaskólastrákar að vestan. Hvort þá
skorti hæfileika eru mikil deilumál hér vestra en ef þú kæri
lesandi, ert fyrir hávaðarokk-pönk og gítarsóló þá hafa þeir
hæfileikann.
Weapons
Eftir að hafa nagað þröskuld hátíðarinnar
tvö síðustu skipti eru strákarnir í Weapons mættir. Einhverskonar
rokk&ról sem menn láta almennt vel af.
Jan
Mayen
Nokkuð áberandi hljómsveit í íslensku
tónlistarlífi síðustu ár. Indí rokk í sem fellur ljúft að
eyrum.
Hljómsveit
Hafdísar Bjarna Djasskona sem hefur verið svolítið falin
í dassheimum.. veit ekki af hverju.. en hún er skrambi góð..
ótrúlegur gítarleikari hún Hafdís
Óli
Popp
Sjóhundur og höfundur þjóðsöngs
Önfirðinga. Var með á Rokkhátíð hinni fyrstu í samkurli við aðra en
mætir nú með eigið band.
I´m being
good
Hljómsveit frá Brighton á Englandi. Hörku indí band sem ég veit
annars fátt um.
KAN
Bolvíska bandið KAN hætti fyrir sirka 20
árum en koma nú saman fyrir okkur. Gáfu út plötuna Ertu í ræktinni
fyrir margt löngu sem er klassík hér fyrir vestan. Hebbi Guðmunds
og félagar í KAN verða án efa í heljar stuði.
Hermigervill Hermigervill er auknefni
tónlistarmannsins Sveinbjarnar Thorarensen, sem ku ættaður úr
Vigur, en á heimasíðu hans segir að efnið af nýjustu plötunni, sem
ber nafnið Sleepwork, sé „nokkuð fjölbreytileg hiphop-elektróník;
sungið og ósungið popp, rokk, hiphop og raf til skiptis.“
Hermigervill hefur vakið nokkra athygli fyrir frumlega tónlist og
fengið afbragðs dóma nær allsstaðar.
bb.is
Rúnar
Þórisson Rúnar Þórisson gerði garðinn
frægan í Grafík á sínum tíma en gaf út sína fyrstu sólóplötu
á síðasta ári, og hlaut hún afbragðs dóma. Með Rúnari á
disknum leikur hljómsveit skipuð söngvurunum Karl Henry og
Láru Rúnarsdóttur, Daða Birgissyni á hljómborð, Þorbirni
Sigurðssyni á gítar, Haraldi Þorsteinssyni á bassa, Jens
Hanssyni og Eyþóri Kolbeinssyni á blásturshljóðfæri, Helgu
Ágústsdóttur og Ágústu Jónsdóttur á strengjahljóðfæri og
trommuleikurunum Agli Rafnssyni og Arnari Gíslasyni. Vinna
við plötuna hófst þegar Rúnar kom heim úr pílagrímsför sinni
í Abbey Road stúdíó Bítlana, en þangað fór hann ásamt
Grafíkliðanum Rafni Jónssyni, heitnum, og fleiri
tónlistarmönnu.
bb.is
NineElevens Hljómsveitina NineElevens þarf vart að
kynna fyrir Vestfirðingum, enda um heimamenn að ræða þó allir séu
þeir búsettir utan bæjarmarkanna. Þeir Valdimar Jóhannsson, Ásgeir
Sigurðsson, Hálfdán Bjarki Hálfdánsson og Gunnar Örn Gunnarsson
áttu stórleik á síðustu hátíð þar sem þeir komu fram ásamt
strengjasveit tónlistarskólans við stórfenglegan fögnuð áhorfenda.
NineElevens spila hrátt svitarokk í anda Mötorhead, þeir klæðast
leðri, eru oftar en ekki berir að ofan og á stundum má sjá
feykilegar sprengingar á sviðinu hjá þeim.
bb.is
Harmonikufélag
Vestfjarða Harmonikufélag Vestfjarða var stofnað 16.
nóvember 1986. Stofnfélagar voru 19 talsins. Frá stofnun
hefur félagið verið opið jafnt áhugafólki um harmonikutónlist
og þeim sem leika á harmoniku og eru félagar um 80 talsins.
Frá upphafi hafa hljómsveitir innan félagsins og einstakir
félagar leikið fyrir dansi við ýmis tækifæri, auk þess
sem félagið hefur staðið fyrir dansleikjum einu sinni til
tvisvar á ári. Félagið hefur tekið þátt í landsmótum
harmonikufélaga frá árinu 1990 og hefur verið lögð áhersla á
að kynna unga og upprennandi harmonikunemendur, ásamt eldri
og reyndari harmonikuleikurum.
bb.is
Reykjavík!
Hljómsveitin Reykjavík! ber upphrópunarmerki sitt hermannlega og
óhætt er að fullyrða að fáar íslenskar hljómsveitir eiga
upphrópunarmerki jafn mikið skilið og þessir hressu piltar, sem
koma iðulega fram með svo miklum látum að áhorfendur eiga í mesta
basli með að skilja hvernig sé hægt að spila tónlist samfara
brjálæðislegri hegðuninni sem einkennir tónlistarmennina, sem
virðast ýmist ætla að svífa til himins eða hrynja niður í gólf af
ofsa. Í sveitinni spila fjórir Vestfirðingar auk eins
utanbæjarmanns.
bb.is
Jón Kr. Ólafsson
ásamt hljómsveitinni Unaðsdal Bílddælingur Jón Kr. Ólafsson var
söngvari og einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar Facon, sem átti
meðal annars ofursmellinn Ég er frjáls. Hann hóf að syngja með
kirkjukór Bíldudalskirkju árið 1954 og hefur oft síðan sungið við
kirkjuathafnir, auk þess að syngja klassísk sönglög og dægurlög.
Jón söng einnig í hljómsveit Jóns Ástvaldar Hall Jónssonar á sínum
tíma. Á Rokkhátíð alþýðunnar kemur Jón Kr. fram ásamt
hljómsveitinni Unaðsdal. Unaðsdalur spilar ljúfsára köntrímúsík sem
kemur öllum í stuð, og gæti mönnum reynst erfitt að finna dansvænni
hljómsveit innan landssteinanna.
bb.is
Rass Hljómsveitin Rass spilar ósvikið
mótmælapönk og er plata þeirra, Andstaða, full af
stórpólitískum skilaboðum til Íslendinga til sjávar og
sveita. Lög á borð við „Umboðsmaður alþingis“ og „Burt með
kvótann“ hafa unnið sér tryggilegan sess í hjörtum hinnar
óstýrilátu æsku, og munu margir vafalaust klökkna í
Edinborgarhúsinu þegar lúfir tónar sveitarinnar verða
leiknir. Fyrir Rassinum fer Óttarr Proppé, sem kenndastur er
við Ham, og undir spila miklir rokkbófar úr Reykjavík. Rass
fjallar um málefnin á málefnalegan hátt.
bb.is
Prumpison Örn Elías Mugison þekkja allir Vestfirðingar sem bera
nafn með rentu, en Rassi hefur kannski verið örlítið duglegari við
að fara framhjá okkur. Að fullu nafni heitir hann Rassi Prump og
spilaði fyrst fyrir Ísfirðinga á kaffihúsakvöldi á Sólrisuhátíð
árið 1998. Rassi, sem einnig er kallaður Ragnar Kjartansson, syngur
líka stundum með hljómsveitum á borð við Trabant og The
Funerals.
bb.is
Siggi
Björns Flateyringurinn Siggi Björns hefur verið nefndur
„konungur beitningaskúranna“, og má til sanns vegar færa að Siggi
spilar sannkallaða verkamannamúsík sem á vel heima í
beitningaskúrum. Alþýðan og músík hennar er ær og kýr Sigga, og
þykir hann jafnvígur á allar helstu folk- og blússtefnur. Nýjasti
geisladiskur Sigga, Stories, var diskur vikunnar á Rás 2 á dögunum,
og má gera ráð fyrir að hlustun á þá stöð hafi aukist verulega þá
vikuna. Siggi er sá eini sem hlotið hefur æviráðningu á Aldrei fór
ég suður hátíðina, en aðrir spila á kvóta.
bb.is
701 Hinn hægláti 701 er einnig
Ísfirðingur, en það er Jóhann Friðgeir Jóhannsson sem er maðurinn á
bak við númerið, sem ku vera stafræn útfærsla á gælunafni Jóhanns:
Jói. 701 hefur gefið út þrjár plötur sem allar hafa fengið góða
dóma og þær seljast víst í bílförmum á internetinu. Er það mál
manna að 701 sé eitt af best geymdu leyndarmálum íslenskrar
tónlistar, en áðurnefndu hæglæti hans má kenna um að heimsfrægðin
hafi enn ekki knúið dyra.
»
22.02.2007 11:15:57 / skens_madur
Náttúrufræði eru einu tímarnir sem ég nenni að blogga í...
kannski af því þeir eru hundleiðinlegir... nenni ekki að koma með
almennilegt blogg hérna inná, bloggaði á www.skens.blog.is áðan, og er bara
löt núna...
»
14.02.2007 22:44:51 / skens_madur
- vaknaði nokkuð hress
- Björg hringdi
- bað um númerið hjá MK
- ég hringdi í hana til að tékka hvort Adolf hefði verið
veikur
- hún átti eftir að ná sambandi við MK
- hún hringdi aftur í mig og sagði að Adolf væri veikur.
- ég lagði mig til kl. 10
- fór í skólann
- Þýskutími
- matarhlé
- Dominos pizza
- sögutími
- Hraðlestrartími
- Pósthúsið
- Bókasafnið
- sat þar ein, því Björg var svöng
- kl. 19:00 fór ég upp í Kóra til mömmu
- Var þar til klukkan 20:30
- fór heim
- Fékk sperðla (bjúgu)
- settist í sófann og sit þar enn, við ljúfa tóna Harðar Torfa og
prjóna mér ullartösku, sjáum til hvernig það gengur upp

GÓÐA NÓTT!!! :*
»
08.01.2007 02:24:58 / skens_madur
þar sem fólk virðist ekki nenna að lesa bloggin mín, hvað þá
kommenta á þau, en virðist vera nokk duglegt í svona bloggleikja
dæmi, þá æltla ég að skella einum svona inná hjá mér... vona að þið
verðið duglegri í honum en blogginu hér að neðan...
[] I want your number
[] Pretty/Cute
[] Hottie
[] Sexy
[] Gorgeous
[] Amazingly Beautiful
[] I'd take you home in a second
[] I'd make out with you right now
[] I'd Hit it
[] No, I dont like you like that
[] I love you
[] Wanna hook up?
Would you kiss me?
[] Hell Yea
[] Yes
[] No
[] Maybe
[] already did
Would you do me?
[] In an instant!
[] Yes
[] No
[] Maybe
[]you look to sweet to screw
[] already did
Am I attractive?
[] Heck no
[] hot as Hell
[] Fine
[] Cute
[] Okay I think ur pretty
[] Sexy
[] Ugly!
Do you think im a virgin?
[] Yes
[] No
[] Don't know
Name one thing you would like to do to me...
[] ________________________
I look like..
[] A player
[] One time thing
[] Next bf/gf
[]somebody you dont have a chance with
If you saw me for the first time would you talk to me?
[] Yes
[] No
[] maybe
Would you rather..
[] Hook up with me
[] Cuddle with me
[] Date me
[] Marry me
[] Friends
On a scale of 1-10 (10 being the highest), rate me..
[] 1
[] 2
[] 3
[] 4
[] 5
[] 6
[] 7
[] 8
[] 9
[] 10
If we could go one place alone where would it be and what would
we do?
What would you want me to be to you?
[] Friend
[] girlfriend/Boy friend
[] Friend with benefits
»
01.01.2007 06:49:49 / skens_madur
-
Jæja, þá er þessari þriggja mánaða geðveiki lokið, bakstur,
verslun, þrif og bara almenn geggjun allt náði þetta hámarki í
alsherjar orgíu þann 24.Desember, í tilefni þess að Jesú fæddist
segja sumir, öðrum finnst þetta þó bara vera fín afsökun fyrir því
að vera gráðugir, latir og rífast við fjölskylduna.
-
Jólin mín voru svo sem ágæt, nóg að éta og drekka og gjafir
í hrönnum. Vantaði reyndar svolítið mikið, vantaði afa, við vissum
ekki alveg hvernig við áttum að haga okkur, reyndum þó að gera gott
úr þessu, tókum því nokkuð rólega í stressinu, slepptum bæði
bakstri og geðveikislegri jólahreingerningu, höfðum hana bara
rólega í þetta sinn

-
Jólagjafir til mín: bodyspray, 3sett af Love
bítldadiskinum, Lay Low diskurinn, Johnny Cash Diskur og Baggalúts
jóladiskurinn. 3 DVD myndir, Shawshank Redeption, White Christmas,
og Oliver Twist. Hárblásari, snyrtidót, 2náttbuxur og bara já…
fullt af dóti…

-
Jólaboðið haldið hjá Invari þetta árið, stórfurðuleg
tilfinning, en var svo sem ágætt, eða svona, já, ég sökkti mér bara
í tiltekt í eldhúsinu, hefði annars bara setið “þunglynd” í stól

-
Svo komu áramótin.
-
Ég hef aldrei verið hrifin af þeim, ekkert við þau sem
heillar mig, nema kannski helst að fá að sprengja
en Áramót
merkja það að, gamla árið er gengið í aldanna skaut og nýtt tekur
við, og ég held einmitt að það sé málið, nýtt ár táknar breytingar,
og breytingar eru eitthvað sem ég hef aldrei verið hrifin af… þótt
sumar breytingar séu til góðs, þá líkar mér lang oftast ekki við
þær í byrjun.
-
T.d. þegar ég fékk nýjann skrifborðsstól, hinn var úr sér
genginn, farinn að skrölta, ýskra og var bara yfir heildina ónýtur,
ég fór með í IKEA þegar nýr stóll var valinn, valid fínann stól, en
ég settist ekki í hann næsta eitt og hálft árið, ég bara vildi ekki
slíta mig frá gamla stólnum, Crazy I know… en svona er ég bara…
breytingar eru neðstar á óskalistanum mínum…

-
Ég ákvað að vera XXX-tra löt á þessum áramótum, hékk bara
heima, klæddi mig ekki einu sinni, var bara uppi í sofa á
náttfötunum, horfði á nokkrar mydnir, drattaðist reydnar út á
tröppur meðan mesta geðveikin gekk yfir, enda lítið hægt að horfa á
Kassann meðan stríðsástand ríkir fyrir utann gluggann hjá
manni.
-
Skaupið var fínt að mínu mati, var búin að gera mér minus
100 væntingar, en svo var það bara á besta skaupið sem ég hef séð á
þessari öld…
fannst það yndislega rætið miðað við síðasta
skaup sem var akkúrat ekki rassgat í bala rætið heldur snerist um
syngjandi klósettgesti og fólk hlaupandi um kringluna með Chaplin
hljóð í bakrunni. Kárahnjúkar voru teknir svo í rassinn, ég meina
ég er alveg með Kárahnjúkum, en samt finnst mér svo gaman að svona
súrum svörtum humor… líka gert bara svo mikið almennt grin að
Íslendingum… við erum svo klikkuð… 
-
Ætla reyndar að kaupa mér nokkra froska og smá drasl fyrir
Þrettándann, hann hefur einhvern veginn alltaf haft meiri ljóma
yfir sér heldur en áramótin.
-
Fékk mjög góðann hrygg í áramótamatinn…
sósan var líka
æðisleg (enda bjó ég hana til… )
-
Ég hef aldrei strength áramótaheit, mér finnst það
asnalegt, enda eru flest þessi heit runnin sitt skeið löngu fyrir
páska.
-
Takk elskurnar mínar fyrir ágætis ár… hefði mátt vera
betra, en það eru sumir hlutir sem verða bara að hafa sinn gang, og
maður ræður ekkert við, þeir verða bara að gerast maður neyðist svo
bara til að bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og lifa lífinu áfram. Ég
veit að ég hef kannski verið, skapstygg, niðurdregin, fúl, pirruð,
einmannalega, einræn og bara yfirhöfuð leiðinleg á stundum, en þá
er það bara af því að ég er eitthvað niðurdregin, ég reyni nú
oftast að láta skapvonsku mina ekki bitna á þeim sem í kringum mig
eru en, ef svo hefur verið þá biðst ég innilega afsökunar… ef ég er
skapstygg við ykkur, jafnvel leiðinleg endilega látið mig vita ég
vil ekki vera vond við ykkur. En ef ég sit inni í matsal, ein með
tölvunni og tónlist, þá þýðir það bara að mig langar til að vera
aðeins ein, þarf að hugsa og vera með sjálfri mér, ekki pirra ykkur
á því, í flestum tilfellum þá slekk ég nú á tónlistinni þegar
einhver kemur til mín, en ég geri það ekki þá er ég bara eitthvað
down, og vil hlusta á tónlist, vona að þið þykkjist ekki við mig
vegna þess…
vona að þið getið sýnt því skilning að það að missa
“pabba” sinn er gífurlegt áfall og maður þarf langann tíma til að
jafna sig, ég er ekki að meina að maður geti ekki hlegið og skemmt
sér og átt góðar stundir jafn vel slatta af þeim, en stundum þarf
maður bara að fá smá tíma fyrir sig, því það er ótrúlega mikið af
breytingum sem fylgja þessu ferli lífsins. Áreiðanlega fleiri
breytingar en fylgja því að eignast born.
-
En núna er þetta nú orðið fulllangt hjá mér, ef þið hafið
komist í gegnum þetta og skilið meirihlutann vil ég þakka ykkur
fyrir vináttuna… og endilega tjáið ykkur…
það er mér
mikilsvirði.
-
Ykkar Elsa Rut Klikkhaus með meiru…

»
12.12.2006 02:21:04 / skens_madur
Önn Áfangi Einingar Lokaeinkunn Staða Dags.lokið
20062 ENS403
ENSKA 3 7 Lokið 07.12.2006
20062 FÉL203 FÉLAGSFRÆÐI Ólokið
20062 ÍSL303 ÍSLENSKA Ólokið
20062 ÍÞR101 ÍÞRÓTTIR Ólokið
20062 NÁT103
NÁTTÚRUVÍSINDI 3 8 Lokið 08.12.2006
20062 SAG103 SAGA 3 6 Lokið 06.12.2006
20062 ÞÝS203 ÞÝSKA 3 6 Lokið 29.11.2006
»
29.11.2006 13:01:20 / skens_madur
1.
Miðnafnið þitt:
2.
Aldur:
3. Single
or Taken:
4.
Uppáhalds bíómynd:
5.
Uppáhalds lag:
6. Dirty or
Clean:
7. Tattoo
eða göt:
8.
Þekkjumst við persónulega?
9. Hver er
tilgangurinn með lífinu?
10. Myndiru
þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
11. Besta
minningin þín um okkur?
12. Myndir
þú gefa mér nýra?
13. Segðu
eitthvað skrýtið um þig:
14. Myndir
þú hugsa um mig ef ég væri veik?
15. Getum
við hist og bakað köku?
16. Hefuru
heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
17. Finnst
þér ég góð manneskja?
18. Myndir
þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
19. Finnst
þér ég aðlaðandi?
20. Hverju
myndiru vilja breyta í mínu fari?
21. Í
hverju sefuru?
22. Kæmiru
í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
23. Myndir
þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
24. Ætlaru
að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta
út?
»
28.11.2006 12:10:52 / skens_madur
10-11
Eins og flest ykkar
vita vinn ég í 10-11 í Engihjalla, og ég verð að segja það þetta
er fín vinna, frekar róleg bara ágætlega skemmtileg. En einu
verð ég að kvarta yfir og við skulum bara orða það svo ef ég
þarf að heyra lögin
“Getur verið - að
þú viljir mig ei Getur verið - að þú viljir ei mann eins og
mig”,
“I’m a slave and
youre my master”
og svo er eitthvað
eitt lag enn sem ég man sem betur fer ekki hvernig hljómar núna…
það eru bara svona sirka 10lög sem þeir spila aftur, aftur,
aftur, aftur og aftur svo sem allt í lagi fyrstu 2-3klukkutímana
en þegar maður er búinn að standa þarna í 7tíma og hlusta á
Madonnu syngja
“like a virgin,
touched for the very first time”
þá er þetta nú
farið að vera svolítið klént hjá greyið
konunni…
Svo eftir hvert
einasta lag þá koma svona sirka 6 10-11 augl. Sem hljóma nokkurn
veginn svona
“Vissir þú að núna
er tíu ellefu í lágmúla og á Akureyri opið allan
sólarhringinn”
“Við hjá 10-11
viljum veita sem besta þjónustu til viðskiptavina okkar og þess
vegna opnuðum við fyrstu sólarhring verslun okkar í Lágmúla árið
2000, núna erum við búin að opna 10, 10-11 sólarhringsverslanir
um allt land”
“Vissir þú að 10-11
á Dalvegi og Barónstíg eru opnar allann
sólarhringinn”
Er samt bara feign
því að þau eru hætt að spila helv. augl. Með fólkinu sem vælir
yfir því að hafa ekki getað fengið brauð þegar það var lítið því
allar búðir lokuðu svo snemma á daginn.
Held ég veðri bara
að segja að þessar 10-11 augl. Eru einar þær smekklausustu augl.
Sem ég hef nokkurn tímann heyrt, bæði asnalegar, pirrandi og
ótrúlega þrúgandi.
En kannski er þetta
röfl í mér bara allt saman tilkomið vegna þess að ég vakna kl. 8
á morgnana fer í skólann í myrkri, skrepp svo kannski út í
sjoppu í hádeginu, og það er svona happa-glappa hvort maður fær
birtu þá, svo er maður búinn í skólanum kl. Half fimm og þá er
farið að dimma úti, fer í vinnuna kl. Fimm og þá er orðið enn
meira dimmt og svo loks á miðnætti er ég búin að vinna og ójá,
þá er komið kolniðamyrkur.
Þannig maður sér nú
ekki mikið sólarljós, og það á bara eftir að versna ,þegar
prófin byrja, þá er það vakna, fara í sporthúsið, heim í sturtu,
út á bókasafn að læra og svo heim að annað hvort læra eða
jólastússast…
»
16.11.2006 21:09:27 / skens_madur
Jæja, þá eru komin 4komment hér fyrir neðan, sem þýðir tími á
meira blogg... ætla að setja myndirnar inná á eftir... nenni ekki
að standa upp eins og er 
1. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér eitthversstaðar,
myndiru halda að ég væri á föstu eða lausu?
2.Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í
hug?
3.Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
4.Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
5.Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
6.Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
7.Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig?
8.Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
9.Hvernig stráka fíla ég?
10.Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
11.Hvað er mest einkennandi við mig?
12.Hvaða búðir elska ég að fara í?
13.Lokaorð til mín?
»
13.11.2006 13:42:11 / skens_madur
»
03.11.2006 10:10:53 / skens_madur
Ég Elsa
Rut skora hér með á Benedikt Kristinsson að setja inn mynd af
rassinum á sér inná bloggið sitt.
http://bodhisattva.bloggar.is/
Endilega ef
þið eruð sammála mér í þessu endilega kommentið hér fyrir neðan og
setjið pressu á drenginn… 
»
01.11.2006 11:19:34 / skens_madur
Detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði... verðbólgan hefur náð í
rassinn á Subway... kafbátur mánaðarins sem að þessu sinni er BMT
kostar nú, ójá haldið ykkur fast ÞRJÚHUNDRUÐ-TUTTUGU-OG-NÍU krónur.
í staðinn fyrir TVÖHUNDRUÐ-NÍUTÍU-OG-NÍU. Ég er ekki sátt...
spurning um að fara í verkfall og hætta að versla hjá þeim...
hmmm... efast nú um að það gangi upp, maður er svo helv. háður
þessum fjanda... úfff... hvað mig langar í einn feittann BMT með
fullt fullt af BBQ sósu... er þá ekki bara málið að gefa skít í
töluna á debetkortinu og kaupa sér eitt stykki? SVÖR ÓSKAST!!!!
»
30.10.2006 14:57:09 / skens_madur
Hvers vegna erum við langflest uppfull af fordómum í garð annara?
Af hverju erum við á móti svertingjum? Pólverjum? Hommum? Lesbíum?
Feitum? Mjóum? Stuttum og löngum? Við þykjumst ekki vilja fá
útlendinga hingað vegna þess að þeir muni stela vinnunni af
íslendingum, það eru léleg rök, þar sem að þessir útlendingar eru
vanalega bara að taka að sér störf sem við íslendingar þykjumst
vera of góð fyrir. Ég meina hversu marga íslendinga sérðu í
fiskverkun? Að skúra? Jú auðvitað er asnlegt að það sé verið að
flytja inn svona mikið magn af fólki til þess eins að vinna vinnu
sem við nennum ekki að gera. En hvað á að gera, ekki getum við bara
hætt að verka fisk, skúra gólf á stofnunum, hlú að gamla fólkinu og
smíða hús bara af því að okkur finnst við of góð til þess? Nei,
þess vegna fáum við fólk frá öðrum löndum til þess. Síðan skömmumst
við út í þetta sama fólk, það er bara heimskulegt, það sem þarf að
gera er að kenna þeim almennilega íslensku, semsagt ríkið þarf að
borga fyrir það íslenskunámskeið, til þess að það geti nú gert sig
skiljanlegt, frekar þrúgandi að afgreiða þetta fólk í 10-11 og
maður skilur varla hvað það er að reyna að tjá sig, og ég er nokk
viss um að þeim finnst þetta ekkert neitt voðalega skemmtilegt
heldur, allavega vildi ég ekki flytja til annars lands og geta ekki
gert mig skiljanlega með góðu móti. Semsagt my point is… fordómar
eru asnalegir, fólk getur voðalega lítið gert að því hverrar þjóðar
það er, hvernig á litinn, hvaða kyni það hrífst af eða hvernig það
er í laginu, á meðan fólk kemur vel fram við mann, þá á maður bara
að leyfa því að fara sínu fram í friði, svo framarlega sem það er
ekki að gera eitthvað ólöglegt eða særa aðra. Var eitthvað vit í
þessu? btw. ég vill fá málefnalegar umræður um þetta mál, ekki bara
hey flott blogg... ókei?
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|